HK heldur tveggja stiga forskoti í efsta sæti Grill 66-deildar handknattleik kvenna hefur þar með pálmann í höndunum fyrir lokaumferðina á sunnudaginn. HK lagði FH með 10 marka mun í Kaplakrika, 29:19, í kvöld. Sigurinn var afar öruggur og ljóst frá byrjun að leikmenn HK ætluðu ekki að láta FH-inga slá sig út af laginu. FH-liðinu tókst það hins vegar á föstudagskvöld gegn Gróttu sem varði til þess að Seltirningar misstu af efsta sæti deildarinnar.
Efsta lið Grill 66-deildar þegar upp verður staðið færist rakleitt upp í Olísdeild á næstu leiktíð. Liðið í öðru sæti þarf hinsvegar að taka þátt umspili um eitt sæti ásamt Víkingi, FH og næst neðsta liðið Olísdeildar kvenna.
Grótta lagði Fjölni örugglega í kvöld, 28:21, í Fjölnishöllinni, og er tveimur stigum á eftir HK. Víkingur og FH eru næst á eftir í þriðja og fjórða sæti.
Afturelding lagði Fram tvö, 25:22, og höfðu liðin sætaskipti í botnsætunum tveimur.
Loks vann Valur 2 lið Víkings örugglega, 33:27, á Hlíðarenda.
Staðan í Grill 66-deildum.
22. og síðasta umferð Grill 66-deildar kvenna:
Afturelding - Víkingur.
Valur 2 - FH.
Grótta - Fram 2.
HK - Fjölnir.
Leikirnir hefjast klukkan 18 á sunnudag.
FH – HK 19:29 (8:19).
Mörk FH: Thelma Dögg Einarsdóttir 9, Hafdís Hera Arnþórsdóttir 3, Dagný Þorgilsdóttir 2, Telma Medos 2, Eva Guðrúnardóttir Long 1, Guðrún Ólafía Marinósdóttir 1, Ísabella Jórunn Mueller 1.
Varin skot: Szonja Szöke 7, Sigrún Ásta Möller 2.
Mörk HK: Tinna Ósk Gunnarsdóttir 7, Amelía Laufey G. Miljevic 5, Leandra Náttsól Salvamoser 5, Valgerður Ýr Þorsteinsdóttir 3, Sóley Ívarsdóttir 3, Inga Fanney Hauksdóttir 2, Hekla Sóley Halldórsdóttir 2, Hekla Fönn Vilhelmsdóttir 1, Margrét Guðmundsdóttir 1.
Varin skot: Danijela Sara B. Björnsdóttir 7, Tanja Glóey Þrastardóttir 2.
Fjölnir – Grótta 21:28 (12:14).
Mörk Fjölnis: Berglind Benediktsdóttir 8, Stefanía Ósk Engilbertsdóttir 5, Hildur Sóley Káradóttir 2, Rósa Kristín Kemp 2, Signý Harðardóttir 2, Karólína Ósk Arndal Sigurlaugardóttir 1, Matthildur Lóa Baldursdóttir 1.
Varin skot: Signý Pála Pálsdóttir 12.
Mörk Gróttu: Ída Margrét Stefánsdóttir 8, Katrín S. Scheving Thorsteinsson 8, Edda Steingrímsdóttir 3, Guðrún Þorláksdóttir 3, Elísabet Ása Einarsdóttir 2, Hrafnhildur Hekla Grímsdóttir 2, Katrín Helga Sigurbergsdóttir 1, Kristín Lísa Friðriksdóttir 1.
Varin skot: Andrea Gunnlaugsdóttir 12.
Fram 2 – Afturelding 22:25 (10:10).
Mörk Fram 2: Aníta Rut Eggertsdóttir 7, Birna Ósk Styrmisdóttir 4, Katla Kristín Hrafnkelsdóttir 3, Silja Katrín Gunnarsdóttir 3, Margrét Á. Bjarnhéðinsdóttir 3, Sylvía Dröfn Stefánsdóttir 1, Þóra Lind Guðmundsdóttir 1.
Varin skot: Arna Sif Jónsdóttir 16.
Mörk Aftureldingar: Katrín Helga Davíðsdóttir 10, Ásdís Halla Helgadóttir 3, Drífa Garðarsdóttir 3, Katrín Erla Kjartansdóttir 3, Susan Ines Barinas Gamboa 3, Karen Hrund Logadóttir 2, Halldóra Ástrós Guðmundsdóttir 1.
Varin skot: Ingibjörg Gróa Guðmundsdóttir 14.
Valur 2 – Víkingur 33:27 (14:11).
Mörk Vals 2: Laufey Helga Óskarsdóttir 12, Hekla Hrund Andradóttir 4, Lena Líf Orradóttir 4, Alba Mist Gunnarsdóttir 3, Erla Sif Leósdóttir 2, Eva Steinsen Jónsdóttir 2, Eyrún Anna Arnarsdóttir 2, Guðrún Ásta Magnúsdóttir 2, Anna Margrét Alfreðsdóttir 1, Katla Margrét Óskarsdóttir 1.
Varin skot: Elísabet Millý Elíasardóttir 13, Oddný Mínervudóttir 1.
Mörk Víkings: Valgerður Elín Snorradóttir 11, Sara Björg Davíðsdóttir 9, Andrea Ósk Þorkelsdóttir 2, Helga Lúðvíka Hallgrímsdóttir 2, Mattý Rós Birgisdóttir 1, Emilía Ína Burknadóttir 1, Auður Brynja Sölvadóttir 1.
Varin skot: Þyri Erla L. Sigurðardóttir 10, Klaudia Katarzyna Kondras 1.



