- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

HK hefur fengið liðsauka frá Víði Garði og Þór

- Auglýsing -

Gríski handknattleiksmaðurinn Orfeus Andreou hefur fengið tímabundin félagaskipti úr Víði Garði, sem leikur í 2. deild, yfir til HK í Olísdeild karla. Orfeus hefur um árabil verið driffjöður handknattleiksdeildar Víðis en hann hefur búið hér á landi um langt árabil.


Einnig hefur markvörðurinn Patrekur Guðni Þorbergsson verið lánaður til HK frá Þór Akureyri. Patrekur Guðni gekk til liðs við Þór í sumar en snýr ný tímabundið aftur í heimahagana.

HK situr í 9. sæti af 12 liðum með 10 stig eftir 15 leiki. HK tekur á móti FH á miðvikudagskvöld þegar keppni hefst á nýjan leik eftir hlé vegna jóla og Evrópumótsins í handknattleik.

Félagaskiptavefur HSÍ.

Staðan og næstu leikir í Olísdeildum.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -