HK komst upp í hið eftirsótta áttunda sæti Olísdeildar karla í handknattleik í kvöld eftir að hafa lagt Þór, 36:31, í afar mikilvægum leik í botnbaráttunni í Kórnum í kvöld. Eftir jafnan leik var HK-liðið sterkara á lokasprettinum og skildi Þórsara eftir í næst neðsta sæti þegar fjórar umferðir eru eftir með níu stig. HK er þremur stigum ofar og geta leikmenn liðsins andað léttar í bili.
Munaði ekki síst um stórleik Brynjars Vignis Sigurjónssonar í marki HK en hann varði allt hvað af tók eftir að hann kom í markið þegar á leið.
Á sama tíma fóru ÍR-ingar afar illa að ráði sínu gegn Fram. Þeir voru sex mörkum yfir, 20:14, þegar tíu mínútur voru liðnar af síðari hálfleik. Vopnin snerust hressilega í höndum leikmanna ÍR á þeim 20 mínútum sem eftir voru. Framarar gengu á lagið og unnu með tveggja marka mun, 28:26. Breki Hrafn Árnason markvörður Fram reyndist drjúgur í síðari hálfleik. Hann mætti til leiks eftir að hafa misst af síðasta leik Framara og varði eins og berserkur.

Áfram syrtir í álinn hjá Stjörnunni sem er aðeins stigi á undan Þór þegar fjórar umferðir eru eftir. Stjörnumenn voru skrefi á eftir Haukum í Hekluhöllinni og töpuðu með tveggja marka mun, 27:25.
Haukar tylltu sér í efsta sæti Olísdeildar með sigrinum, stigi á undan Val sem fær KA í heimsókn í síðasta leik 18. umferðar á morgun klukkan 15.
Staðan og næstu leikir í Olísdeildum.
Stjarnan – Haukar 25:27 (11:13).
Mörk Stjörnunnar: Jóel Bernburg 7, Benedikt Marinó Herdísarson 5/2, Daníel Karl Gunnarsson 4, Hans Jörgen Ólafsson 4, Atli Hrafn Bernburg 2, Jóhannes Bjorgvin 2, Starri Friðriksson 1.
Varin skot: Adam Thorstensen 11/1, 32,4% – Sigurður Dan Óskarsson 1/1, 25%.
Mörk Hauka: Freyr Aronsson 6/1, Skarphéðinn Ívar Einarsson 5, Sigurður Snær Sigurjónsson 4, Hergeir Grímsson 4/4, Arnór Róbertsson 3, Birkir Snær Steinsson 2, Brynjólfur Snær Brynjólfsson 2, Jón Karl Einarsson 1/1.
Varin skot: Grétar Ari Guðjónsson 6, 25% – Magnús Gunnar Karlsson 1, 14,3%.
Tölfræði leiksins hjá HBStatz.
ÍR – Fram 26:28 (13:13)
Mörk ÍR: Bernard Kristján Owusu Darkoh 10, Baldur Fritz Bjarnason 5/1, Sveinn Brynjar Agnarsson 3, Róbert Snær Örvarsson 3, Elvar Otri Hjálmarsson 3, Jökull Blöndal Björnsson 1, Nathan Doku Helgi Asare 1.
Varin skot: Alexander Ásgrímsson 15/1, 35,7%.
Mörk Fram: Rúnar Kárason 8, Ívar Logi Styrmisson 6/4, Viktor Sigurðsson 5, Dagur Fannar Möller 4, Theodór Sigurðsson 2, Eiður Rafn Valsson 1, Erlendur Guðmundsson 1, Kjartan Þór Júlíusson 1.
Varin skot: Arnór Máni Daðason 10, 33,3% – Breki Hrafn Árnason 9/1, 60%.
Tölfræði leiksins hjá HBStatz.
HK – Þór 36:31 (20:19).
Mörk HK: Haukur Ingi Hauksson 11, Ágúst Guðmundsson 8/1, Sigurður Jefferson Guarino 5, Andri Þór Helgason 4, Hjörtur Ingi Halldórsson 5, Orfeus Andreou 3, Örn Alexandersson 1.
Varin skot: Brynjar Vignir Sigurjónsson 14/1, 43,8% – Róbert Örn Karlsson 3, 20% – Jovan Kukobat 1/1, 100%.
Mörk Þórs: Hafþór Már Vignisson 8, Kári Kristján Kristjánsson 5/1, Brynjar Hólm Grétarsson 4, Igor Chiseliov 4, Arnór Þorri Þorsteinsson 3, Hákon Ingi Halldórsson 3, Aron Hólm Kristjánsson 2, Halldór Kristinn Harðarson 2.
Varin skot: Nikola Radovanovic 13/2, 27,1%.
Tölfræði leiksins hjá HBStatz.
Staðan og næstu leikir í Olísdeildum.



