Færeyingar unnu sín fyrstu verðlaun á heimsmeistaramóti í handknattleik í dag þegar þeir lögðu Svía, 27:26, í leiknum um bronsverðlaunin í Katowice í Póllandi. Sigurinn var fyllilega verðskuldaður hjá færeysku piltunum sem voru sterkari í síðari hálfleik þegar þeir náðu mest fimm marka forskoti. Svíar lögðu allt í sölurnar í lokin og tókst að minnka muninn í eitt mark. Færeyska liðið átti síðustu sóknina en tókst ekki að bæta við 28. markinu. Það skipti engu máli.
Frábær árangur hjá færeyska liðinu sem á eftir að láta enn meira að sér kveða á næstu árum
Hér er að finna myndir af sigurfögnuði:
BEINLEIÐIS: Staðfest! Føroyar eru triðbest í heiminum í U21-hondbólti
Fyrstu verðlaun í boltaíþrótt
Þetta er í fyrsta skipti sem færeyskt landslið vinnur til verðlauna á stórmóti í boltaíþrótt og því um risastóran áfanga að ræða fyrir frændur okkar sem eru að uppskera eftir frábært starf á síðustu árum.
Varnarleikur færeyska liðsins lagði grunn að sigrinum í ásamt stórleik markvarðarins Aleksandars Lacok sem var með 36% hlutfallsmarkvörslu, þar af 45% í fyrri hálfleik þegar Færeyingar áttu lengst af undir högg að sækja. Lacok gengur til liðs við St Otmar/ St Gallen í sumar.
Tóku frumkvæðið í síðari hálfleik
Staðan var jöfn í hálfleik, 12:12. Svíar voru lengst af með yfirhöndina og allt upp í þriggja marka forskot, m.a. 12:9. Færeyska liðið komst í fyrsta sinn yfir, 17:16, þegar um 10 mínútur voru liðnar af síðari hálfleik. Um miðjan hálfleikinn var forskotið tvö mörk, 20:18, og skömmu síðar fjögur mörk, 22:18. Mestur var munurinn fimm mörk, 25:20 þegar fimm mínútur voru til leiksloka. Varnarleikur færeyska liðsins hafði þá verið frábær.
Succès HISTORIQUE dans l'histoire du handball moderne par les U21 des îles Féroé 🇫🇴 pic.twitter.com/iNRi6BvWbR
— HandNews (@HandNewsfr) June 29, 2025
Allir leikmenn færeyska liðsins komu við sögu í viðureigninni í dag en fyrir utan markvörðinn þá mæddi mest á Óla Mittún sem lék með reifað höfuð eftir að hafa fengið skurð á augabrúnina í viðureigninni við Portúgal í undanúrslitum. Fleiri leikmenn færeyska liðsins voru framúrskarandi á mótinu og ljóst að margir þeirra eiga eftir að koma við sögu A-landsliðsins á næstu árum.
Mörk Færeyja: Óli Mittún 9/1, Ísak Vedelsbøl 6/1, Trúgvi Hávardsson 2/2, Óla Jákup Gaard Olsen 2, Rókur Ziskason 2, Tóki Friðriksson 1, Sofus í Selvindi Nattestad 1, Niklas Gaard 1, Búi Djurhuus Poulsen 1, Høgni Heinason 1, Høgni Højsted 1.
Varin skot: Aleksandar Lacok 17/2, 36%.
Mörk Svíþjóðar: Axel Månsson 10, Elliot Eriksson 4, Pelle Segertoft 3, Noah Martinsson 3, Theodor Uliana Starck 2, Linus Gustavsson 2, Sebastian Durlanu 2.
Varin skot: Arvid Skoog 13/3, 37% – Emil Holmbeg 0.
Handbolti.is streymdi leiknum: