U19 ára landslið karla í handknattleik vann Egypta, 23:22, í fyrsta leik sínum á Opna Evrópumótinu í Gautaborg í morgun. Eins og svo oft áður tefla Egyptar fram stóru og sterku liði og því var von á hörkuleik og sú varð og raunin. Næsti leikur íslenska liðsins á mótinu verður gegn Spánverjum klukkan 14.30 í dag. Leiktími á mótinu er 2×20 mínútur.
Egyptar verða gestgjafar heimsmeistaramótsins sem íslenska landsliðið tekur þátt í en mótið hefst eftir liðlega mánuð.
Íslenska liðið hafði frumkvæðið fyrstu mínútarnar og var með 1-2 marka forystu. Eftir því sem leið á hálfleikinn styrktist varnarleikur Egypta og smám saman náðu þeir yfirhöndinni. Þegar liðin gengu til búningsklefa voru Egyptar marki yfir, 12:11.

Þjálfarateymi íslenska liðsins skipti um varnarleik í hálfleik og fljótlega fór að koma hik á sóknarleik andstæðinganna sem skilaði sér í nokkrum góðum hraðaupphlaupum og uppúr miðjum síðari hálfleik var íslenska liðið 2-3 mörkum yfir. Það forskot hélst alveg fram á lokamínúturnar þegar Egyptar fóru að spila maður á mann í vörninni. Þegar 20 sekúndur voru eftir minnkuðu þeir muninn í eitt mark. Íslenska liðið missti boltann þegar 4 sekúndur lifðu leiks en til allrar hamingju var það ekki nægur tími fyrir Egypta til að jafna metin og strákarnir okkar fögnuðu sætum eins marks sigri, 23:22.
Mörk Íslands: Dagur Árni Heimisson 6, Ágúst Guðmundsson 3, Bessi Teitsson 3, Elís Þór Aðalsteinsson, 2, Egill Jónsson 2, Haukur Guðmundsson 2, Garðar Ingi Sindrason 1, Daníel Montoro 1, Andri Erlingsson 1, Dagur Leó Fannarsson 1, Jens Bragi Bergþórsson 1.
Varin skot: Jens Sigurðarson 10, Sigurjón Bragi Atlason 1/1.