- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Hörð barátta um síðustu sætin í úrslitakeppninni

- Auglýsing -

Birgir Steinn Jónsson var í leikmannahópi IK Sävehof í gærkvöld þegar liðið vann Amo HK á heimavelli, 35:33, í 24. umferð sænsku úrvalsdeildarinnar. Birgir Steinn skoraði ekki mark í sigurleiknum. IK Sävehof er í fimmta sæti með 29 stig eftir 24 leiki. Tvær umferðir eru óleiknar í deildinni.

Úr leik

Arnar Birkir Hálfdánsson skoraði eitt mark fyrir Amo HK sem er í 10. sæti með 19 stig og á ekki lengur möguleika á að sæti í átta liða úrslitum. Sjö stigum munar á Amo HK í 10. sæti og HF Karlskorna og Önnereds sem eru í áttunda og níunda sæti með 26 stig.

Nærri sæti í úrslitakeppni

Arnór Viðarsson skoraði eitt mark þegar HF Karlskrona vann afar mikilvægan sigur í baráttu sinni um sæti í úrslitakeppni sænsku úrvalsdeildarinnar í gærkvöld. Karlskrona lagði OV Helsingborg HK með eins marks mun á útivelli, 36:35.

  • Stöðuna í mörgum deildum evrópsks handknattleiks er að finna hér.
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -