Aganefnd HSÍ hefur úrskurðað handknattleiksdeild Harðar til greiðslu 110 þúsund kr sektar vegna 150 þúsund kr kröfu sem stofnuð var í einkabanka dómara eftir viðureign Harðar 2 og Vængja Júpíters í 2. deild karla í handknattleik sem fram fór á Ísafirði 30. nóvember. Handknattleikdeild Harðar staðfestir í greinargerð sem send var aganefnd krafan hafi verið stofnuð á vegum félagsins og og hún réttlætt með að dómarinn hafi valdið félaginu skaða.
Krafa stofnuð
„Þann 10. desember sl. barst aganefnd erindi frá framkvæmdastjóra HSÍ vegna hegðunar forsvarsmanns Harðar eftir leik Harðar 2 og Vængja Júpiters í 2. deild karla þann 30. nóvember sl. og kröfu sem stofnuð var í einkabanka dómara,“ segir í úrskurði aganefndar sem birtur var á vef HSÍ í morgun.
Setti sig ítrekað í samband við dómara
Í erindinu er því lýst að framkvæmdastjóra HSÍ hafi borist upplýsingar þess efnis, að umræddur aðili hafi í kjölfar framangreinds leiks ítrekað reynt að setja sig í samband við annan dómara leiksins og ekki látið af þeirri hegðun, þrátt fyrir beiðni þar um. Þá hafi handknattleiksdeild Harðar í kjölfarið stofnað tilhæfulausa kröfu í einkabanka dómarans að fjárhæð kr. 150.000.
Í greinargerð Harðar til aganefndar er m.a. tekið fram að umræddur aðili sem erindi beinis að sé ekki forráðamaður deildarinnar, heldur styrktaraðili, velunnari og sjálfboðaliði hjá félaginu hafi ekki komið að stofnun umræddrar kröfu í heimabanka dómarans. Hins vegar staðfestir félagið að krafan hafi verið stofnuð á vegum félagsins og virðist á því byggt að það hafi verið réttlætanlegt þar sem dómarinn olli félaginu skaða.
Óíþróttamannslega háttsemi
„Með vísan til framangreinds er það mat aganefndar að sá einstaklingur sem erindi það sem hér er til umfjöllunar beinist að, telst í öllu falli stuðningsaðili, styrktaraðili eða annar tengdur aðili í skilningi reglugerðarinnar. Enn fremur hefur félagið gengist við því að fjárkrafa, sem beint var persónulega að dómara leiksins vegna starfa hans sem dómari, stafi frá félaginu og hafi verið send í einkabanka dómarans af þar til bærum aðila á vegum félagsins. Hafa engin haldbær rök verið færð fram fyrir þeirri kröfu eða að hún eigi nokkurn rétt á sér. Er það mat aganefndar að um sé að ræða óíþróttamannslega háttsemi á vegum félagsins sem var til þess fallin að skaða ímynd handknattleiksíþróttarinnar,“ segir í úrskurði aganefnda HSÍ nánar má kynna sér hér fyrir neðan.
Ofangreint mál er ekki það eina sem komið hefur inn á borð aganefnar vegna fyrrgreinds leiks:
Bragi Rúnar úrskurðaður í þriggja leikja bann