- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -

Hreppa silfurverðlaun annað árið í röð

Hannes Jón Jónsson þjálfari Alpla Hard fer yfir málin með sínum mönnum. Ljósmynd/Alpla Hard
- Auglýsing -


Annað árið í röð verða Hannes Jón Jónsson og liðsmenn hans í Alpla Hard að gera sér silfurverðlaun að góðu í úrslitakeppninni í austurríska handknattleik. Alpla Hard tapaði öðru sinni í kvöld fyrir Krems í úrslitarimmunni um meistaratitilinn, 25:23. Leikurinn fór fram á heimavelli Krems sem hafnaði í öðru sæti deildarkeppninnar. Alpla Hard varð deildarmeistari.


Tumi Steinn Rúnarsson, sem gekk til liðs við Alpla Hard fyrir ári, skoraði tvö mörk úr fimm skotum.

Krems vann fyrsta leikinn í Bregenz fyrir viku einnig með tveggja marka munu, 32:30.

Krems var með undirtökin í heimaleiknum sínum frá upphafi til enda og var marki yfir í hálfleik, 12:11.

Tumi Steinn verður áfram undir stjórn Hannesar hjá Alpla Hard á næstu leiktíð. Í hópinn bætist Tryggvi Garðar Jónsson.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -