HSÍ hefur boðið til blaðamannafundar klukkan 14 á morgun undir yfirskriftinni; Framtíðarsýn A landsliðs karla. Samkvæmt heimildum handbolta.is verður á fundinum tilkynnt um að samningar séu í höfn við Snorra Stein Guðjónsson landsliðþjálfara karla í handknattleik og Arnór Atlason aðstoðarþjálfara um að þeir haldi áfram þjálfun karlalandsliðsins næstu árin. Þeir hafa verið landsliðsþjálfarar frá 2023 og rennur núverandi samningur þeirra út 1. júní.
Nokkurrar taugaveiklunar hefur víða gætt síðustu vikur vegna þess hversu langan tíma hefur tekið að ganga frá nýjum samningi. Hefur m.a. verið komið af stað kviksögu um að danska handknattleikssambandið hafi alvarlega borið víurnar í Arnór Atlason aðstoðarþjálfara í leit sem stendur yfir að aðstoðarþjálfara karlalandsliðs Danmerkur.
Bresti ekki á með rauðri eða appelsínugulri veðurviðvörun á morgun hefst blaðamannafundur HSÍ í húsakynnum Arion banka, Borgartúni 19, klukkan 14.



