- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -

HSÍ og Arion banki framlengja samstarf sitt

Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka t.v. og Guðmundur B. Ólafsson formaður HSÍ. Ljósmynd/HSÍ
- Auglýsing -

Fréttatilkynning frá Handknattleikssambandi Íslands

HSÍ og Arion banki hafa undirritað samkomulag um áframhaldandi samstarf sín á milli. Arion banki hefur verið einn af dyggustu bakhjörlum HSÍ allt frá árinu 2004 og er það afar mikilvægt fyrir íslenskan handknattleik að tryggja áframhaldandi samstarf við jafn öflugt fyrirtæki og Arion banki er. Öll landslið HSÍ munu því áfram leika með merki Arion banka á sínum keppnisbúningum.

Það voru Guðmundur B. Ólafsson, formaður HSÍ, og Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka, sem undirrituðu samninginn.

„Við erum mjög ánægð að halda áfram samstarfi við Arion banka. Samstarf okkar hefur staðið yfir í langan tíma og gengið vel og erum við þakklát Arion banka að leggja sitt á vogaskálarnar til að efla handbolta á Íslandi. HSÍ þakkar Arion banka traustið frá 2004 og saman höldum við áfram að efla handboltann á Íslandi,“ segir Guðmundur B. Ólafsson, formaður HSÍ.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -