- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Hvalreki á fjörur ÍBV – Andrea semur til tveggja ára

- Auglýsing -

Andrea Jacobsen, landsliðskona í handknattleik, hefur skrifað undir tveggja ára samning við ÍBV og gengur til liðs við félagið frá þýska félaginu Blomberg-Lippe í sumar.

Andrea, sem er 27 ára vinstri skytta, hefur leikið sem atvinnumaður í Þýskalandi og Danmörku undanfarin ár og verið í stóru hlutverki hjá íslenska landsliðinu, þar sem hún á að baki 66 landsleiki og 116 mörk.

„Við hjá ÍBV Handbolta erum mjög ánægð að tilkynna að Andrea Jacobsen hefur gert tveggja ára samning frá og með næsta tímabili og kemur til liðsins frá Blomberg-Lippe í Þýskalandi

Samtals hefur hún spilað 66 landsleiki og skorað 116 landsliðsmörk fyrir Ísland, auk farsældar í Evrópukeppnum með félögum sínum í Þýskalandi. Við erum spennt að fá hana til Vestmannaeyja. Andrea bætir miklum styrk og reynslu við hópinn,“ sagði meðal annars í tilkynningu frá handknattleiksdeild ÍBV.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -