- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

ÍBV átti ekki í vandræðum í KA-heimilinu

- Auglýsing -

ÍBV átti ekki teljandi vandræðum með að vinna KA/Þór í síðasta leik 16. umferðar Olísdeildar kvenna í handknattleik í KA-heimilinu í dag. ÍBV var skrefi framar og rúmlega það frá upphafi til enda leiksins og vann með 10 marka mun, 32:22. Staðan var 18:11 að loknum fyrri hálfleik, ÍBV í vil.


ÍBV er áfram í öðru sæti Olísdeildar og hefur nú 26 stig og er tveimur stigum á eftir Íslandsmeisturum Vals sem á toppnum eru. KA/Þór er í fimmta sæti með 13 stig og er átta stigum á undan Stjörnunni sem er næst neðst og er í umspilssæti sem stendur.

Fyrsta stundarfjórðunginn sem liðin voru að þreifa fyrir sér var leikurinn í jafnvægi en upp úr því tók ÍBV-liðið völdin. Sandra Erlingsdóttir og Birna Berg Haraldsdóttir fóru fyrir sóknarleik liðsins og markið skipulagði Amalia Frøland. Í síðari hálfleik olli góður varnarleikur ÍBV-liðsins leikmönnum KA/Þórs ítrekuðum erfiðleikum. Munurinn var orðinn 10 mörk eftir sjö mínútna leik í síðari hálfleik og úrslitin nánast ráðin.


Mörk KA/Þórs: Susanne Denise Pettersen 5, Tinna Valgerður Gísladóttir 4/4, Trude Blestrud Hakonsen 4, Anna Þyrí Halldórsdóttir 3, Sólveig Lára Kristjánsdóttir 3, Anna Petrovics 2, Lydía Gunnþórsdóttir 1/1.
Varin skot: Ástrós Anna Bender 2, 40% – Bernadett Leiner 2, 6,7% – Selma Sigurðardóttir 1, 100%.

Mörk ÍBV: Sandra Erlingsdóttir 8/1, Alexandra Ósk Viktorsdóttir 5, Ásdís Halla Hjarðar 5, Birna Berg Haraldsdóttir 5, Birna María Unnarsdóttir 3, Birna Dögg Egilsdóttir 2, Ásta Björt Júlíusdóttir 2, Amelía Dís Einarsdóttir 1, Kristrún Ósk Hlynsdóttir 1.
Varin skot: Amalia Frøland 10/1, 34,5% – Ólöf Maren Bjarnadóttir 2/1, 50%.

Tölfræði leiksins hjá HBStatz.

Staðan og næstu leikir í Olísdeildum.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -