ÍBV hafði betur gegn Aftureldingu, 32:29, þegar liðin áttust við í 18. umferð Olísdeildar karla í íþróttamiðstöð Vestmannaeyja í kvöld. Með sigrinum fór ÍBV upp fyrir Aftureldingu.
ÍBV er nú í fjórða sæti með 23 stig og Afturelding er sæti neðar með jafnmörg stig. ÍBV stendur hins vegar betur að vígi innbyrðis eftir að hafa unnið báða leiki liðsins í deildinni á tímabilinu.
ÍBV var við stjórn lengi vel og var til að mynda fimm mörkum yfir í hálfleik, 19:14. Afturelding hóf síðari hálfleik prýðilega og minnkaði muninn fljótt í þrjú mörk, 19:16, en Eyjamenn svöruðu með því að skora þrjú mörk í röð og komast þannig sex mörkum yfir í fyrsta sinn, 22:16.
ÍBV hélt sex marka forskoti um nokkurt skeið en eftir að hafa komist í 27:21 hófst alvöru áhlaup Aftureldingar um miðjan hálfleikinn.
Þegar sjö mínútur lifðu leiks var Afturelding búin að minnka muninn niður í aðeins eitt mark, 29:28, og Eyjamenn farnir að ókyrrast.
Aftureldingu tókst hins vegar ekki að jafna metin þrátt fyrir nokkur tækifæri til, ÍBV fann ágætis takt að nýju og vann að lokum góðan þriggja marka sigur.
ÍBV – Afturelding 32:29 (19:14)
Mörk ÍBV: Hákon Daði Styrmisson 7/5, Andri Erlingsson 6, Daníel Þór Ingason 6, Elís Þór Aðalsteinsson 4, Anton Frans Sigurðsson 4, Kristófer Ísak Bárðarson 2, Ívar Bessi Viðarsson 1, Sveinn José Rivera 1, Dagur Arnarsson 1.
Varin skot: Morgan Goði Garner 14 – 43,8% varsla, Petar Jokanovic 2/1.
Mörk Aftureldingar: Ihor Kopyshynsky 8/2, Harri Halldórsson 7, Ævar Smári Gunnarsson 5, Árni Bragi Eyjólfsson 3, Stefán Magni Hjartarson 2, Oscar Sven Leithoff Lykke 2, Sveinur Olafsson 1, Þorvaldur Tryggvason 1.
Varin skot: Einar Baldvin Baldvinsson 5, Sigurjón Bragi Atlason 3.



