ÍBV stóð uppi sem sigurvegari á KG Sendibílamótinu sem lauk í KA-heimilinu eftir hádegið í dag. Mótið hófst á fimmtudagskvöld. ÍBV vann allar viðureignir sínar þrjár á mótinu á sannfærandi hátt. Í lokaumferðinni í dag lagði ÍBV liðskonur Gróttu með 10 marka mun, 25:15.
Stjarnan lagði KA/Þór, 26:21. Fór svo að Grótta, KA/Þór og Stjarnan unnu sinn leikinn hvert en töpuðu tvisvar hvert lið.
Úrslit allra leikja KG Sendibílamóts kvenna á Akureyri:
KA/Þór – Grótta 32:24.
Stjarnan – ÍBV 21:25.
KA/Þór – ÍBV 18:28.
Grótta – Stjarnan 28:25.
ÍBV – Grótta 25:15.
Stjarnan – KA/Þór 26:21.
Karlalið KA og Þórs mættust tvisvar á KG sendibílamótinu. KA vann fyrri leikinn 29:23 og KA-menn unnu aftur í dag en þá var munurinn eitt mark, 27:26, eftir því sem fram kemur á Akureyri.net.
Úrslit og markaskorarar í dag
Stjarnan – KA/Þór 26:21.
Mörk KA/Þórs: Unnur Ómarsdóttir 4, Bernadett Réka Leiner 4, Lydía Gunnþórsdóttir 3, Rakel Sara Elvarsdóttir 3, Trude Håkonsen 2, Tinna Valgerður Gísladóttir 1, Anna Petrovic 1, Elsa Guðmundsdóttir 1, Þórunn 1, Susanne Pettersen 1.
Mörk Stjörnunnar: Tinna Sigurrós Traustadóttir 8, Natasja Hammer 6, Guðmunda Auður Guðjónsdóttir 4, Vigís Arna Hjartardóttir 4, Aníta Björk Theodórsdóttir 2, Bryndís Hulda Ómarsdóttir 1, Hanna Guðrún Hauksdóttir 1.
ÍBV – Grótta 25:15.
Mörk Gróttu: Ída Margrét Stefánsdóttir 6, Katrín Scheving 3, Svandís Birgisdóttir 2, Arna Katrín Viggósdóttir 1, Elísabet Ása Einarsdóttir 1, Kristín Scheving 1, Edda Steingrímsdóttir 1.
Mörk ÍBV: Sandra Erlingsdóttir 7, Birna Berg Haraldsdóttir 6, Ásdís Halla Hjarðar 3, Birna Dís Sigurðardóttir 2, Amelía Dís Einarsdóttir 3, Lilja Svansdóttir 1, Ásta Björt Júlíusdóttir 1, Birna María Unnarsdóttir 1.
- Upplýsingar um markaskorara og úrslit leikja dagsins í dag eru afritaðar af Handkastid.net.
- Sá maður innan KA sem sendi upplýsingar til fjölmiðla eftir tvo fyrstu keppnisdagana virðist hafa misst móðinn eftir þriðja og síðasta keppnisdag.
Olísdeild kvenna – fréttasíða.