- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -

Ída Margrét semur við Gróttu og færir sig varanlega um set

Ída Margrét Stefánsdóttir skiptir yfir til Gróttu í sumar eftir lánsdvöl. Mynd/Eyjólfur Garðarsson
- Auglýsing -

Handknattleikskonan Ída Margrét Stefánsdóttir hefur skrifað undir þriggja ára samning við Handknattleiksdeild Gróttu. Ída Margrét hefur í vetur verið á láni hjá Gróttu frá Val. Hún hefur tekið ákvörðun að kveðja Val og hafa félagaskipti yfir til Gróttu í sumar.


Ída Margrét er 21 árs gömul og leikur sem vinstri skytta. Hún hefur leikið afar vel með Gróttuliðinu á keppnistímabilinu og verið í lykilhlutverk, jafnt í vörn sem sókn og skorað 89 mörk.


„Það eru mikil gleðitíðindi að Ída semji við okkur til þriggja ára. Hún er gríðarlega öflug skytta. Það eru miklar vonir bundnar við að hún eigi eftir dafna enn frekar sem leikmaður á næstu misserum og hjálpa liðinu að tryggja sig meðal bestu liða landsins,“ segir Sigurjón Friðbjörn Björnsson þjálfari Gróttu í tilkynningu frá félaginu.

Staðan í Grill 66-deild deildunum og næstu leikir.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -