Alþjóða handknattleikssambandið, IHF, heldur áfram að senda út boðskort á mót sem sambandið stendur fyrir. Á dögunum datt Ísland í lukkupottinn þegar boðskort barst um þátttöku á heimsmeistaramót kvenna í handknattleiks sem fram fer í vetur. Í dag voru tvö boðskort send út vegna heimsmeistaramóts félagsliða í karlaflokki.
Barcelona og Füchse Berlin var boðið til þátttöku á heimsmeistaramótinu sem fram fer í Sádi Arabíu frá 7. til 12. nóvember, mánuði síðar en undanfarin ár. Barcelona var í þriðja sæti í Meistaradeild Evrópu í vor en þýska liðið vann Evrópudeildina. Víst er að boðin til félaganna koma ekki á óvart.
Þess utan eiga bæði félög góða sögu í keppninni eftir að hafa unnið oftar en einu sinni. Füchse Berlin vann 2015 og 2016, í bæði skiptin undir stjórn Eyjamannsins Erlings Richardssonar.
Eftirtalin lið taka þátt í heimsmeistaramóti félagsliða í karlaflokki nóvember:
- Evrópumeistarar SC Magdeburg, sem er auk þess sigurlið síðustu tveggja ára.
- Afríkumeistarar Al Ahly Kairo frá Egyptalandi.
- Asíumeistarar Al Najma frá Barein.
- Norður Ameríku- og Karabíahafsmeistarar San Francisco CalHeat frá Bandaríkjunum.
- Silfurlið Meistaradeildar Evrópu, Barlinek Industria Kielce frá Póllandi.
- Sigurlið meistarakeppni Arabíuliða – liggur ekki fyrir.
- Tvö félagslið frá Sádi Arabíu – liggur ekki fyrir hvaða lið hreppa hnossið.
- Boðskort: Barcelona frá Spáni og Füchse Berlin frá Þýskalandi.