„Líðanin er ótrúlega góð. Maður er bara í sigurvímu núna,“ sagði Þórey Anna Ásgeirsdóttir, hægri hornamaður Vals, í samtali við handbolta.is eftir að liðið tryggði sér bikarmeistaratitilinn með 23:19 sigri á Haukum í Kuehne+Nagel höllinni á Ásvöllum í dag.
Þórey Anna velkist ekki í vafa um að innkoma Theu Imani Sturludóttur hafi skipt sköpum þegar Valur sneri erfiðri stöðu sér í vil síðasta stundarfjórðunginn.
Valur er bikarmeistari í tíunda sinn – eftir magnaðan lokakafla
„Það sem gerist er að Thea kom inn á og fékk að spila sókn. Það var dálítið viðsnúningurinn, það gaf okkur einhvern veginn orku og kraft. Hún er frábær leikmaður og þá fengum við líka Hafdísi [Renötudóttur] aðeins betur í gang,“ sagði hún.
Ekki séns að missa trúna á verkefninu
„Þá einhvern veginn small allt. Svo búum við að frábærri liðsheild þannig að við missum aldrei trúna á verkefninu þó við séum 3-4 mörkum undir. Bara ekki séns!“ sagði Þórey Anna, en Haukar voru þegar mest lét 18:14 yfir.
Hún sagði það ákveðinn létti að vinna nú eina bikarinn sem Val tókst ekki að vinna á mögnuðu síðasta tímabili.
„Já, auðvitað. Maður var svekktur að ná þessu ekki í fyrra. Þannig að þetta er léttir og þetta er líka bara ógeðslega gaman. Við erum í skýjunum með þetta.“


