- Auglýsing -
ÍR-ingar hafa áhyggjur af þátttöku Bernard Kristján Owusu Darkoh í næstu leikjum liðsins í Olísdeildinni eftir að hann meiddist á vinstri öxl í viðureign Þórs og ÍR á föstudagskvöld. Svo segir í frétt Handkastsins í morgun.
Þórður Tandri Ágústsson leikmaður Þórs var of seinn að bregðast við áhlaupi Bernards og greip þar með í vinstri handlegg hans.
Gunnar Óli Gústafsson og Bjarki Bóasson dómarar sýndu Þórði Tandra hiklaust rauða spjaldið. Bernard kom því miður ekkert meira við sögu í leiknum og gæti verið frá um tíma.
Atvikið átti sér stað eftir um fimmtán mínútna leik.

Nýliðarnir byrjuðu á sigri – ÍR-ingar heillum horfnir
- Auglýsing -