- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Ísak fór hamförum í öruggum sigri

- Auglýsing -

Ísak Steinsson átti sannkallaðan stórleik í marki Drammen þegar liðið heimsótti Fjellhammer og vann öruggan sigur, 30:24, í norsku úrvalsdeildinni í kvöld.

Ísak gerði sér lítið fyrir og varði 18 skot, þar af eitt vítakast. Var hann þannig með 43% hlutfallsmarkvörslu.


Ísak, sem er aðeins tvítugur, lék allan leikinn í marki Drammen, sem er í fimmta sæti úrvalsdeildarinnar með 23 stig eftir 18 leiki. Hefur hann verið í lykilhlutverki hjá liðinu á tímabilinu.

Sex umferðir eru óleiknar í deildinni og er Drammen langt komið með að tryggja sér sæti í átta liða úrslitakeppni um norska meistaratitilinn.

Standings provided by Sofascore
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -