- Auglýsing -
Íslendingaliðið TMS Ringsted rauk upp í áttunda sæti dönsku úrvalsdeildarinnar í kvöld eftir öruggan sigur á SønderjyskE, 30:25, á útivelli í 20. umferð dönsku úrvalsdeildarinnar í kvöld. Fyrir leikinn var TMS Ringsted í 12. sæti.
Ísak Gústafsson skoraði þrjú mörk fyrir TMS Ringsted í sigri Sjálandsliðsins í heimsókn til suðurhluta Jótlands. Guðmundur Bragi Ástþórsson skoraði eitt mark úr vítakasti fyrir TMS Ringsted.
- Auglýsing -



