- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -

Ísland á níu sæti í Evrópukeppni félagsliða

Evrópubikarmeistarar Vals. Ljósmynd/Hafliði Breiðfjörð
- Auglýsing -


Íslandi stendur til boða að skrá níu lið til þátttöku í Evrópumótum félagsliða (Evrópudeildin, Evrópubikarkeppnin) á næsta keppnistímabili, fjögur í karlaflokki og fimm í kvennaflokki. Vegna sigurs Vals í Evrópubikarkeppni kvenna á dögunum fær Ísland viðbótarsæti í kvennaflokki, að sögn Róberts Geirs Gíslasonar framkvæmdastjóra HSÍ. Félögin hafa frest til 24. júní til þess að gera upp hug sinn hvort þau taki þátt eða ekki.

Fimm kvennalið

Kvennaliðin fimm sem eiga rétt á að senda lið sín til leiks í Evrópubikarkeppnina eru: Fram, Haukar, Selfoss, ÍR auk Evrópubikarmesitara og Íslandsmeistara Vals. Á síðasta tímabili tóku tvö íslensk lið þátt í keppninni; Valur vann keppnina og Haukar sem náðu inn í átta liða úrslit.

Stjarnan er ákveðin

Eins og kom fram á handbolti.is á laugardaginn hefur Stjarnan ákveðið að senda karlalið sitt til keppni í Evrópudeild karla. Eru leikmenn þegar byrjaðir að safna fyrir þátttökunni.

Auk Stjörnunnar eiga Íslands- og bikarmeistarar Fram þess kost að taka þátt í Evrópudeildinni en Ísland á tvö sæti í keppninni eins og á síðasta ári. Framarar munu liggja undir feldi og velta þar þátttökunni fyrir sér.

Deildarmeistarar FH og Valur sem varð í öðru sæti í Olísdeildinni og í úrslitkeppninni um Íslandsmeistaratitilinn eiga þess kost að vera með í Evrópubikarkeppninni. Eftir því sem næst verður komist er áhugi fyrir hendi innan beggja félaga að taka þátt.

Fer í gegnum HSÍ

Allar umsóknir félaganna fara í gegnum Handknattleikssamband Íslands og þaðan áfram til skrifstofu Handknattleikssambands Evrópu sem fer yfir umsóknir og gefur út þátttökulista og leikjaskipulag um miðjan júlí eins og undanfarin ár.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -