- Auglýsing -
Ísland verður í riðli með Evrópumeisturum Spánar á Evrópumóti karla í handknattleik sem fram fer í Rúmeníu í sumar. Þetta varð ljóst þegar dregið var í riðla keppninnar í dag. Auk þess eiga landslið Austurríkis og Lettlands sæti í riðlinum.
Mótið fer fram í borgunum Cluj-Napoca og Turda í norðurhluta Rúmeníu frá 8. til 19. júlí.
Spánn varð í öðru sæti á HM 19 ára landsliða í Kaíró í ágúst eftir tap fyrir Þýskalandi í úrslitaleik þar sem úrslitin réðust í bráðabana. Ísland hafnaði í sjötta sæti. Austurríki lenti í 15. sæti en Lettar voru ekki á meðal þátttökuliða.
Riðlaskipting:
| A-riðill: | B-riðill: |
| Þýskaland | Serbía |
| Portúgal | Sviss |
| Frakkland | Færeyjar |
| Grikkland | Tyrkland |
| C-riðill: | D-riðill: |
| Ísland | Danmörk |
| Spánn | Noregur |
| Austurríki | Króatía |
| Lettland | N-Makedónía |
| E-riðill: | F-riðill: |
| Svíþjóð | Ungverjaland |
| Rúmenía | Slóvenía |
| Ísrael | Tékkland |
| Bosnía | Pólland |
- Auglýsing -



