- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -

Ísland í C-riðli með Þjóðverjum í Stuttgart á HM kvenna

Thea Imani Sturludóttir og félagar í íslenska landsliðinu mæta Þjóðverjum í Stuttgart á HM í lok nóvember. Þjóðverjar voru einnig andstæðingur íslenska landsliðsins á EM í fyrra. Ljósmynd/Hafliði Breiðfjörð
- Auglýsing -


Íslenska landsliðið leikur í C-riðli í Porsche Arena í Stuttgart í riðlakeppni heimsmeistaramóts kvenna í lok nóvember. Dregið var í dag í Hertogenbosch í Hollandi og verða mótherjar íslenska landsliðsins þýska landsliðið, serbneska landsliðið og landslið Úrúgvæ sem var sú þjóð sem dróst úr fjórða og neðsta styrkleikaflokki í riðli íslenska liðsins.


Leikir íslenska landsliðsins verða 26., 28. og 30. nóvember. Ef marka má niðurröðun á Wikipedia-síðu HM kvenna þá byrjar íslenska landsliðið á leik við Þjóðverja. Þar á eftir tekur við leikur gegn Serbíu áður en að viðureigninni við Paragvæ kemur sunnudaginn 30. nóvember.

Þrjú lið komast áfram úr C-riðli í milliriðla sem leiknir verða í Dortmund 2., 4. og 6. desember.

Komist Ísland í milliriðil verður leikið í Westfalenhallen í Dortmund gegn liðum úr D-riðli. Í þeim riðli verða Svartfjallaland, Spánn, Færeyjar og Paragvæ.

HM kvenna fer fram í Hollandi og Þýskalandi frá 26. nóvember til 14. desember þegar heimsmeistarar verða krýndir. Frakkar unnu heimsmeistaratitilinn 2023.

Elín Rósa Magnúsdóttir sækir að vörn þýska landsliðsins á EM í Innsbruck á síðasta ári. Ljósmynd/Hafliði Breiðfjörð

Ef íslenska liðið rekur lestina í riðlinum tekur það þátt í keppninni um forsetabikarinn Hertogenbosch í Hollandi 4., 6. og 8. desember.

Ísland var í þriðja styrkleikaflokki, einu hærra en fyrir HM 2023, og fékk Þýskaland úr fyrsta flokki og Serbíu úr öðrum flokki.


Riðlaskipting og leikstaðir:

A-riðill (Rotterdam):B-riðill (Hertogenbosch):
DanmörkUngverjalandi
RúmeníaSviss
JapanSenegal
KróatíaÍran
C-riðill (Stuttgart):D-riðill (Trier):
ÞýskalandSvartfj.land
SerbíaSpánn
ÍslandFæreyjar
ÚrúgvæParagvæ
E-riðill (Rotterdam):F-riðill (Hertogenbosch):
HollandFrakkland
AusturríkiPólland
ArgentínaTúnis
EgyptalandKína
G-riðill (Stuttgart):H-riðill (Trier):
SvíþjóðNoregur
BrasilíaAngóla
TékklandSuður Kórea
KúbaKasakstan
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -