-Auglýsing-

Ísland í efsta flokki – Dregið á fimmtudaginn

- Auglýsing -

Ísland verður í fyrsta styrkleikaflokki þegar dregið verður í riðla undankeppni Evrópumóts karlalandsliða í Lissabon á fimmtudaginn. Alls verða nöfn 32 þjóða í skálunum fjórum sem dregið verður úr í átta riðla með fjórum þjóðum í hverjum þeirra. Fyrstu leikir undankeppninnar verða leiknir 4. og 5. nóvember. Þeir síðustu verða sunnudaginn 9. maí 2027.


Tvö efstu lið hvers riðils komast í lokakeppni EM sem haldið verður í Portúgal, Spáni og Sviss í janúar 2028. Einnig komast fjögur lið með besta árangur í þriðja sæti áfram. Alls 20 þjóðir af 32 komast áfram úr undankeppninni í lokakeppnina. Evrópumeistarar Danmerkur sitja hjá í undankeppninni auk Portúgals, Spánar og Sviss.

Styrkleikaflokkarnir:

Flokkur 1: Króatía, Frakkland, Þýskaland, Ungverjaland, Ísland, Noregur, Slóvenía, Svíþjóð.

Flokkur 2: Austurríki, Tékkland, Færeyjar, Ítalía, Norður-Makedónía, Holland, Pólland, Serbía.

Flokkur 3: Belgía, Bosnía & Herzegóvína, Georgía, Grikkland, Litáen, Svartfjallaland, Rúmenía, Úkraína.

Flokkur 4: Eistland, Finnland, Ísrael, Kósovó, Lettland, Lúxemborg, Slóvakía, Tyrkland.

Ísland verður dregið á móti einni þjóð úr öðrum, þriðja og fjórða flokki.

Leikdagar undankeppninnar:
1. umferð: 4. og 5. nóvember 2026.
2. umferð: 7. og 8. nóvember 2026.
3. umferð: 10. og 11. mars 2027.
4. umferð: 13. og 14. mars 2027.
5. umferð: 5. og 6. maí 2027.
6. umferð: 9. maí 2027 - allir leikir hefjast klukkan 16.

A-landslið karla, fréttasíða.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -