- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Ísland í neðsta flokki þegar dregið verður í riðla EM á fimmtudag

- Auglýsing -

Ísland verður í fjórða og neðsta styrkleikaflokki þegar dregið verður í riðla fyrir lokakeppni Evrópumóts kvenna í handknattleik í Katowice í Póllandi síðdegis næsta fimmtudag.

Nöfn 24 þjóða verða í skálunum sem dregið verður úr og hefur þeim verið deilt niður í fjóra styrkleikaflokka. Það að vera í fjórða flokki þýðir að íslenska landsliðið dregst í riðil með þjóðum sem taldar eru standa Íslandi framar.

Pólland, Rúmenía, Slóvakía, Tékkland og Tyrkland verða gestgjafar EM 3. – 20. desember 2026.

Flokkur 1: Noregur, Danmörk, Ungverjaland, Frakkland, Svíþjóð, Holland.

Flokkur 2: Þýskaland, Svartfjallaland, Pólland, Rúmenía, Spánn, Tékkland.

Flokkur 3: Tyrkland, Slóvakía, Slóvenía, Sviss, Austurríki, Færeyjar.

Flokkur 4: Króatía, Serbía, Ísland, Norður-Makedónía, Úkraína, Grikkland.

Dregið verður í sex riðla með fjórum liðum í hverjum riðli. Tvö efstu lið hvers riðils fara áfram í milliriðla – tvö neðstu liðin halda til síns heima að lokinni riðlakeppninni.

Leikstaðir riðlakeppninnar:
A-riðill: Oradea, Ungverjaland.
B-riðill: Cluj-Napoca, Rúmenía.
C-riðill: Antalya, Tyrklandi.
D-riðill: Brno, Tékkland.
E-riðill: Katowice, Pólland.
F-riðill: Bratislava, Slóvakía.
-Milliriðlakeppnin verður leikin í Cluj-Napoca í Rúmeníu og Katowice í Póllandi.
-Úrslitahelgi EM verður haldin í Katowice í Póllandi.

A-landslið kvenna – fréttasíða.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -