- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Ísland í riðli með Ungverjum, Sviss og Svartfellingum á EM 18 ára

- Auglýsing -

Ísland dróst í riðil með Ungverjalandi, Sviss og Svartfjallalandi í lokakeppni Evrópumóts 18 ára landsliða karla sem fram fer í Belgrad í Serbíu frá 29. júlí til 9. ágúst í sumar. Dregið var eftir hádegið í höfuðstöðvum Handknattleikssambands Evrópu í Vínarborg.

Ísland var í öðrum styrkleikaflokki af fjórum en þjóðunum var raðað niður í styrkleikaflokk með tilliti til árangurs á stórmótum, HM og EM, í yngri aldursflokkum síðustu fjögur ár að Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar 17 ára og yngri undanskilinni. Ísland vann þá keppni í fyrra.

Svíþjóð er ríkjandi Evrópumeistarar í þessum aldursflokki.

Riðlaskiptingin:

A-riðill:B-riðill:
SvíþjóðÞýskaland
SlóveníaSerbía
FrakklandÍtalía
N-MakedóníaTyrkland
C-riðill:D-riðill:
PortúgalUngverjaland
KróatíaÍsland
TékklandSviss
ÍsraelSvartfjallaland
E-riðill:F-riðill:
DanmörkSpánn
NoregurFæreyjar
SlóvakíaAusturríki
PóllandFinnland
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -