Íslendingalið Alpla Hard HC Hard vann góðan sigur á nágrönnum sínum í Bregenz Handball, 35:30, í austurrísku 1. deildinni í handknattleik karla í dag. Leikið var í Bregenz.
Tumi Steinn Rúnarsson skoraði fjögur mörk fyrir Alpla Hard og gaf tvær stoðsendingar. Tryggvi Garðar Jónsson var ekki á meðal markaskorara að þessu sinni en var einu sinni vikið af velli í tvær mínútur. Hannes Jón Jónsson þjálfar liðið.
Alpla Hard er á toppi austurrísku deildarinnar með 21 stig, tveimur stigum meira en SC Kerlach í öðru sæti.
Keppni í deildinni er ansi hörð þar sem Bregenz er til að mynda í áttunda sæti af tólf liðum með 15 stig, fjórum stigum á eftir Kerlach í öðru sæti og fjórum stigum fyrir ofan botnlið UHC Hollabrunn.




