- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Íslendingaliðið skákaði Kiel

- Auglýsing -

Íslendingalið MT Melsungen vann frækinn sigur á stórliði THW Kiel, 30:29, í þýsku 1. deildinni í handknattleik karla í kvöld. Melsungen fór með sigrinum upp í sjöunda sæti deildarinnar og er þar með 30 stig.

Kiel hefur gengið illa að undanförnu og hefur nú tapað þremur af síðustu fjórum deildarleikjum sínum. Liðið er enn í fjórða sæti með 36 stig en annað Íslendingalið, VfL Gummersbach, getur með sigri á Hannover-Burgdorf annað kvöld komist upp fyrir Kiel.


Arnar Freyr Arnarsson skoraði tvö mörk úr tveimur skotum fyrir Melsungen. Reynir Þór Stefánsson komst ekki á blað að þessu sinni, átti ekki skottilraun í leiknum. Báðir léku þeir með íslenska landsliðinu í tveimur vináttulandsleikjum gegn Svíþjóð í síðustu viku.

Leikurinn í kvöld var liður í 26. umferð þýsku deildarinnar en stórleikur umferðarinnar verður á morgun þegar Íslendingalið SC Magdeburg fær ríkjandi Þýskalandsmeistara Füchse Berlín í heimsókn.

Standings provided by Sofascore
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -