- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Íslendingaliðin töpuðu í Meistaradeildinni

- Auglýsing -

Íslendingalið Kolstad frá Noregi og ungverska liðið One Veszprém töpuðu heimaleikjum sínum í lokaumferð A-riðils Meistaradeildar Evrópu í handknattleik karla í kvöld.

Kolstad var þegar úr leik og hafnar í botnsæti riðilsins en Veszprém er komið í fyrstu umferð útsláttarkeppninnar, þar sem liðið hafnar í fimmta eða sjötta sæti. Kemur það endanlega í ljós síðar í kvöld þegar tveir síðari leikir lokaumferðarinnar fara fram.


Sigvaldi Björn Guðjónsson, fyrirliði Kolstad, skoraði fjögur mörk fyrir liðið í 26:27 tapi fyrir Industria Kielce í Þrándheimi og Benedikt Gunnar Óskarsson skoraði tvö mörk. Sigurjón Guðmundsson varði ekki eina skotið sem hann fékk á sig í marki Kolstad.

Bjarki Már Elísson lék ekki með Veszprém í samnefndri borg þegar danska stórliðið Aalborg Håndbold kom í heimsókn. Aalborg vann að lokum 38:33 sigur.

Aalborg var þegar búið að tryggja sér annað sæti riðilsins og þar með beint sæti í átta liða úrslitum. Kielce hafnar í þriðja sæti og fer í útsláttarkeppnina.

Standings provided by Sofascore
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -