Íslendingalið HSG Blomberg-Lippe vann torsóttan og dramatískan útisigur á HSG Bensheim/Auerbach, 29:28, í þýsku 1. deildinni í handknattleik kvenna í kvöld. Íslensku landsliðskonurnar Andrea Jacobsen, Díana Dögg Magnúsdóttir og Elín Rósa Magnúsdóttir létu allar að sér kveða.
Andrea skoraði þrjú mörk úr fimm skotum og gaf þrjár stoðsendingar að auki. Díana Dögg skoraði tvö mörk úr þremur skotum og gaf einnig þrjár stoðsendingar. Elín Rósa Magnúsdóttir bætti þá við einu marki úr tveimur skotum og gaf eina stoðsendingu.
Sigurmark Blomberg-Lippe kom tveimur sekúndum fyrir leikslok eftir æsilegar lokamínútur. Liðið er í öðru sæti með 30 stig, einu stigi á eftir toppliði BV Borussia Dortmund.
Búið er að leika 17 umferðir í deildinni og eru fjórar umferðir eftir. Blomberg-Lippe er búið að tryggja sæti sitt í átta liða úrslitakeppni um þýska meistaratitilinn og getur enn orðið deildarmeistari.



