- Auglýsing -
Íslenska landsliðið í handknattleik karla mætir Evrópumeisturum Frakka í síðari viðureign sinni á æfingamóti París á sunnudaginn. Frakkar unnu Austurríkismenn, 34:29, í síðari viðureign kvöldsins á mótinu. Fyrr í kvöld lagði íslenska landsliðið það slóvenska, 32:26.
Leikurinn á sunnudaginn hefst klukkan 16.30 og verður sjánlegur í útsendingu RÚV.
Viðureignin fer fram í Paris La Défense Arena eins og leikirnir í dag.
Leikurinn við Frakka verður síðasta viðureign íslenska landsliðsins fyrir átökin á Evrópumótinu í handknattleik sem hefst á fimmtudaginn en Ísland verður í eldlínunni daginn eftir, á föstudag eftir viku, gegn ítalska landsliðinu.
EM karla 2026 – leikdagar, leikstaðir, leiktímar
- Auglýsing -




