Pólverjar verða andstæðingar Íslendinga í krossspilsleik um sæti 17 til 20 á heimsmeistaramóti 21 árs landsliða í handknatteik karla á fimmtudagsmorgun. Pólverjar unnu nauman sigur á Argentínumönnum, 33:32, í Płock í Póllandi í kvöld.
Viðureign Póllands og Íslands hefst klukkan 7.30 og þar með verður ekki sofið út þann daginn.
Pólska landsliðið vann þar með milliriðil eitt í keppni liðanna í neðri hlutanum, sæti 17 til 32. Íslenska landsliðið vann milliriðil þrjú. Leikur Íslands og Póllands fer fram í Katowice.
Í hinni viðureign krossspilsins um sæti 17 til 20 eigast við Alsír og Serbía.
Sigurliðið úr viðureign Íslands og Póllands leikur við sigurliðið um leik Alsír og Serbíu á föstudaginn um 17. sætið og þar með forsetabikarinn sem veittur er liðinu sem verður efst af neðri liðunum sautján.
Tapliðið úr viðureign Póllands og Íslands mætir tapliði í viðureign Serbíu og Alsír um 19. sætið.
Árgangurinn sem nú leikur á HM21 árs landsliða tók þátt í HM 19 ára landsliða í Króatíu fyrir tveimur árum. Íslenska landsliðið varð í 19. sæti á HM 19 ára landsliða fyrir tveimur árum með svipaðan leikmannahóp og nú tekur þátt í HM 21 árs landsliða.