Ómar Ingi Magnússon og Gísli Þorgeir Kristjánsson fóru báðir í kostum þegar topplið SC Magdeburg vann góðan heimasigur á HC Erlangen, 35:31, í þýsku 1. deildinni í dag. Ómar Ingi var langmarkahæstur í leiknum með 14 mörk ú 16 skotum.
Þar af skoraði hann átta mörk úr vítaköstum og gaf auk þess þrjár stoðsendingar. Gísli Þorgeir skoraði átta mörk úr jafnmörgum skotum og gaf sömuleiðis þrjár stoðsendingar.
Elvar Örn Jónsson skoraði eitt mark fyrir Magdeburg úr þremur skotum. Andri Már Rúnarsson var þá með fjögur mörk úr sex skotum, öll úr vítaköstum, en Viggó Kristjánsson lék ekki með Erlangen að þessu sinni.
Einar Þorsteinn Ólafsson komst ekki á blað með HSV Hamburg þegar liðið tapaði 27:34 fyrir THW Kiel á heimavelli. Einari Þorsteini var einu sinni vikið af velli í tvær mínútur.
Bergischer HC, sem Arnór Þór Gunnarsson þjálfar, gerði þá jafntefli við TVB Stuttgart, 25:25, á heimavelli.
Magdeburg er á toppi deildarinnar, sjö stigum fyrir ofan SG Flensburg-Handewitt þegar sex umferðir eru eftir. Hamburg er í 11. sæti með 23 stig og Bergischer er í 15. sæti með 15 stig, fjórum stigum fyrir ofan fallsæti.



