Þýska handknattleiksliðið Blomberg-Lippe, með landsliðskonurnar Andreu Jacbosen, Díönu Dögg Magnúsdóttur og Elínu Rósu Magnúsdóttur innanborðs, lauk riðlakeppni Evrópudeildarinnar í handknattleik í kvöld með jafntefli við ungverska liðið MOL Esztergom, 31:31, á heimavelli. Blomberg-Lippe hafnaði í þriðja sæti B-riðils 16-liða úrslita með fjögur stig í sex viðureignum. Blomberg-Lippe fékk stigin sín fjögur í síðustu þremur leikjunum.
Tvö efstu liðin, MOL Esztergom og Nykøbing Falster halda áfram í keppni ásamt tveimur efstu liðum A, C og D-riðils.
Andrea skoraði 3 mörk, átti 3 stoðsendingar, skapaði eitt færi, stal boltanum tvisvar og varði 1 skot í vörninni.
Díana Dögg skoraði 1 mark, gaf 2 stoðsendingar, skapaði eitt marktækifæri og vann andstæðing einu sinni af leikvelli.
Elín Rósa skoraði ekki mark en átti eina stoðsendingu.
Tókst að snúa við taflinu
Blomberg-Lippe var lengst af undir í leiknum í kvöld á heimavelli og m.a. var fjögurra marka munur á liðunum þegar kom fram í síðari hálfleik. Leikmenn þýska liðsins sýndu hins vegar mikinn baráttuhug á lokakaflanum, tókst að minnka muninn og jafna metin þegar kom inn á síðustu mínútur leiksins. Nuria Bucher skoraði jöfnunarmarkið skömmu fyrir leikslok.



