Jakob Martin Ásgeirsson, leikmaður FH, hefur skrifað undir nýjan þriggja ára samning við uppeldisfélag sitt og er nú samningsbundinn því til sumarsins 2029.
Jakob Martin, sem er 27 ára vinstri hornamaður, hefur alla tíð leikið með FH og er á sínu tíunda tímabili með meistaraflokki.
„Jakob Martin hefur verið einn allra traustasti leikmaður liðsins á báðum endum vallarins undanfarinn áratug en þessi uppaldi leikmaður er að spila sitt 10. tímabili með FH í meistaraflokki.
Jakob Martin hefur alls leikið 307 leiki í FH-treyjunni og þar af 32 Evrópuleiki en aðeins Guðjón Árnason á fleiri Evrópuleiki fyrir FH, 41 talsins. Evrópumet Guðjóns gæti því verið í hættu á næstu árum en FH hefur nú þegar tryggt sér þátttökurétt í Evrópukeppni á næsta tímabili,“ sagði meðal annars í tilkynningu frá handknattleiksdeild FH.
FH hefur leik í úrslitakeppni Olísdeildarinnar annað kvöld þegar Fram kemur í heimsókn í Kaplakrika í fyrstu umferð.
Olís karla: Leikjadagskrá, úrslitakeppni 2026.



