- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Jana Mittún íþróttamaður ársins í Færeyjum

- Auglýsing -

Handknattleikskonan Jana Mittún var í gær valin íþróttamaður eða íþróttanafn Færeyja 2025 í hófi sem haldið var í Þórshöfn. Hún er kjölfesta færeyska kvennalandsliðsins sem tók þátt í heimsmeistaramótinu í Þýskalandi og Hollandi á síðasta ári með góðum árangri. M.a. vann færeyska landsliðið frækinn sigur á spænska landsliðinu og gerði jafntefli við Serbíu.


Jana skoraði 32 mörk á HM og átti 29 stoðsendingar. Auk þess að leika með færeyska landsliðinu er Jana meðal öflugustu leikmanna danska úrvalsdeildarliðsins Viborg sem leikur m.a. í Evrópudeildinni.

Við valið í Færeyjum er hægt að kjósa einstaklinga jafnt sem félagslið. Á eftir Jönu í kjörinu voru karlalandsliðið í knattspyrnu og Vár Guriardóttir Hansen ræðari.

Jana er systir landsliðsmannsins Óla Mittún.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -