- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Janus Daði og félagar mæta Evrópumeisturunum

- Auglýsing -

Janus Daði Smárason og samherjar í ungverska liðinu Pick Szeged komust í kvöld í átta liða úrslit Meistaradeildar Evrópu í handknattleik. Pick Szeged gerði jafntefli, 32:32, við pólska liðið Industria Kielce í Póllandi. Jafnteflið nægði vegna þess að Pick Szeged vann fyrri viðureignina á heimavelli fyrir viku, 26:23.

Pick Szeged mætir Evrópumeisturunum SC Magdeburg tvisvar í átta liða úrslitum í lok þessa mánaðar og í byrjun þess næsta.


Janus Daði skoraði fjögur mörk í leiknum í Kielce. Lazar Kukic var markahæstur með sex mörk. Marin Jelinic og Mario Sostaric skoruðu fimm sinnum hvor.

Szymon Sicko var atkvæðamestur hjá Kielce með átta mörk og Dylan Nahi skoraði sex mörk.

Nantes gaf ekki færi á sér

Franska liðið Nantes komst einnig í átta liða úrslit í kvöld eftir stórsigur á heimavelli á danska liðinu GOG, 40:28.

Nantes leikur við Barcelona í átta liða úrslitum.


Leikmenn GOG fóru illa að ráði sínu á heimavelli fyrir viku þegar þeir misstu niður fimm marka forskot í eins marks tap. Í kvöld átti GOG ekki möguleika í Frakklandi. Nantes var þegar komið með níu marka forskot í hálfleik og sló ekkert af í síðari hálfleik.

Valero Rivera skoraði níu mörk fyrir Natnes og Nicolas Tounat skoraði sex sinnum. Lasse Vilhelmsson skoraði sex mörk fyrir GOG.

Úrsláttarkeppninni lýkur annað kvöld þegar Wisla Plock tekur á móti Sporting og One Veszprém sækir PSG heim.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -