Jóhannes Berg Andrason átti einkar góðan leik fyrir TTH Holstebro þegar liðið vann kærkominn og dramatískan sigur á Mors-Thy Håndbold, 38:37, í dönsku úrvalsdeildinni í dag. Sigurmark Holstebro, sem Arnór Atlason þjálfar, kom fjórum sekúndum fyrir leikslok.
Jóhannes steig upp á mikilvægum augnablikum og skoraði fimm mörk úr jafnmörgum skotum fyrir Holstebro, sem vann sinn fyrsta sigur í deildinni í sléttan mánuð.
Holstebro, sem er í sjöunda sæti úrvalsdeildarinnar, hafði að undanförnu misst tvo unna leiki niður í klaufaleg jafntefli og steinlegið á heimavelli fyrir Ribe-Esbjerg.
Elvar kom að átta mörkum
Ribe-Esbjerg var einnig í eldlínunni í dag og fékk stórlið Aalborg Håndbold í heimsókn. Unnu gestirnir frá Álaborg sinn 23. sigur í jafnmörgum leikjum en lokatölur voru 32:29 eftir hörkuleik.
Elvar Ásgeirsson átti í töluverðum erfiðleikum með Niklas Landin í marki Aalborg. Elvar skoraði tvö mörk hjá Landin en sex skot íslenska landsliðsmannsins fóru forgörðum.
Vel gekk hins vegar hjá Elvari að mata liðsfélaga sína með góðum sendingum en hann átti alls sex stoðsendingar í leiknum.
Donni sneri aftur
Kristján Örn Kristjánsson skoraði þá eitt mark úr fjórum skottilraunum og gaf eina stoðsendingu fyrir Skanderborg AGF Håndbold í 28:22 heimasigri á Nordsjælland Håndbold.
Þetta var fyrsti leikur Kristjáns Arnar, Donna, frá því hann gekkst undir skurðaðgerð vegna kviðslits í janúar síðastliðnum.
Skanderborg er í öðru sæti deildarinnar með 32 stig og Ribe-Esbjerg er í 12. sæti með 16 stig.




