Jón Þórarinn Þorsteinsson átti sannkallaðan stórleik í marki FH þegar liðið vann góðan sigur á Fram, 28:26, í fyrsta leik liðanna í átta liða úrslitum Olísdeildarinnar í Kaplakrika í kvöld. FH er 1:0 yfir í einvíginu, en vinna þarf tvo leiki til þess að komast í undanúrslit.
Annar leikur liðanna fer fram í Lambhagahöllinni í Úlfarsárdal næstkomandi mánudagskvöld þar sem Fram þarf sigur, ellegar fer liðið í snemmbúið sumarfrí.
Leikurinn var í járnum í fyrri hálfleik og var Fram einu marki yfir að honum loknum, 12:13. Í síðari hálfleik reyndist FH sterkari aðilinn, komst nokkrum sinnum fjórum mörkum yfir og vann að lokum með tveimur mörkum.
Selfyssingurinn Jón Þórarinn varði 18 skot í marki FH og var með 41% markvörslu. Breki Hrafn Árnason í marki Fram lék sömuleiðis vel og varði 14 skot, þar af tvö vítaköst, og var með 35% markvörslu.
FH – Fram 28:26 (12:13)
Mörk FH: Ómar Darri Sigurgeirsson 6, Símon Michael Guðjónsson 4/4, Birkir Benediktsson 3, Einar Örn Sindrason 3, Kristófer Máni Jónasson 3, Jón Bjarni Ólafsson 3, Garðar Ingi Sindrason 2/1, Birgir Már Birgisson 2, Jakob Martin Ásgeirsson 1, Gunnar Kári Bragason 1.
Varin skot: Jón Þórarinn Þorsteinsson 18, 41% markvarsla.
Mörk Fram: Ívar Logi Styrmisson 6/2, Kjartan Þór Júlíusson 5, Rúnar Kárason 4, Dánjal Ragnarsson 3, Dagur Fannar Möller 3, Þorsteinn Gauti Hjálmarsson 2, Erlendur Guðmundsson 2, Viktor Sigurðsson 1.
Varin skot: Breki Hrafn Árnason 14/2, 35% markvarsla, Arnór Máni Daðason 1.
Tölfræði leiksins hjá HBStatz.



