- Auglýsing -
KA vann Aftureldingu á sannfærandi hátt í æfingaleik að Varmá í kvöld, 38:33. Akureyrarliðið var þremur mörkum yfir í hálfleik, 19:16.
KA-liðið var mun grimmara en Aftureldingarliðið sem var talsvert frá því að leika eins vel í kvöld og gegn Val á síðasta laugardag í N1-höllinni. Frammistaðan er Aftureldingarmönnum áminning um að keppni í Olísdeildinni hefst innan tveggja vikna.
Daði Jónsson varnarmaðurinn sterki hjá KA fékk slæman skurð á andlitið og þurfti að fara á sjúkrahús. Ekki er nánar vitað ástand hans.
Því miður var handbolti.is ekki með blað og penna í för að Varmá í kvöld og því fór utanumhald á markaskorun og vörðum skotum fyrir ofan garð og neðan.
- Auglýsing -