KA hafði sætaskipti við ÍBV í Olísdeild karla í handknattleik í dag að loknum eins marks sigri í viðureign liðanna í KA-heimilinu, 29:28. KA færðist upp í 5. sæti með 24 stig. ÍBV er stigi á eftir þegar 19 umferðum af 22 er lokið.
ÍBV var með yfirhöndina lengst af leiksins. M.a. var tveggja marka munur, 15:13, í hálfleik. Snemma í síðari hálfleik voru Eyjamenn komnir með fimm marka forskot, 18:13, og síðar 22:17. KA, sem var án Bjarna Ófeigs Valdimarssonar og Mortens Linder, skoraði 10 mörk gegn þremur frá ÍBV á 13 mínútna kafla þangað til liðlega fjórar mínútur voru til leiksloka. Þar af skoraði KA sjö mörk gegn einu á liðlega sjö mínútna kafla frá 48. til 55. mínútu.
Eftir það hélt KA frumkvæðinu til leiksloka þótt tæpt stæði.
Nökkvi Snær Óðinsson jafnaði metin, 28:28, þegar tæpar þrjár mínútur voru til leiksloka. Giorgi Arvelodi Dikhaminjia, sem hrökk í gang í síðari hálfleik, skoraði 29. markið tveimur mínútum fyrir leikslok. Markið reyndist skilja liðin að þegar upp var staðið.
Markvörðurinn ungi, Morgan Goði Garner, opnaði möguleika Eyjamanna fyrir að ná öðru stiginu er hann varði á ævintýralegan hátt frá Patreki Stefánssyni úr opnu færi 20 sekúndum fyrir leikslok. Félögum Morgans tókst ekki að nýta þann tíma sem eftir var til þess að jafna metin. ÍBV-liðið fór þar með tómhent frá Akureyri eftir að hafa verið sterkara liðið í leiknum í þrjá fjórðu leiktímans.
Ágúst Elí Björgvinsson átti afar góðan leik í marki KA. Arnór Ísak Haddsson fór mikinn í sóknarleiknum, ekki síst í síðari hálfleik. Áður er getið um framgöngu Georgíumannsins Giorgi Arvelodi Dikhaminjia.
Andri Erlingsson átti stórleik með ÍBV, hann skoraði sjö mörk og átti auk þess sjö stoðsendingar.
Mörk KA: Einar Rafn Eiðsson 9/7, Arnór Ísak Haddsson 6, Dagur Gautason 4, Giorgi Arvelodi Dikhaminjia 4, Einar Birgir Stefánsson 4, Magnús Dagur Jónatansson 1, Patrekur Stefánsson 1.
Varin skot: Ágúst Elí Björgvinsson 15, 34,9%.
Mörk ÍBV: Andri Erlingsson 7, Hákon Daði Styrmisson 7/2, Dagur Arnarsson 3, Daníel Þór Ingason 3, Elís Þór Aðalsteinsson 3, Sveinn José Rivera 3, Nökkvi Snær Óðinsson 2.
Varin skot: Petar Jokanovic 11, 33,3% – Morgan Goði Garner 2, 25%.
Tölfræði leiksins hjá HBStatz.
Staðan og næstu leikir í Olísdeildum.




