- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

KA/Þór fær íslenskan markvörð frá Flint Tønsberg

- Auglýsing -

KA/Þór hefur samið við Ingibjörgu Hauksdóttur markvörð. Hún kemur til Akureyrarliðsins í sumar og ætlar að standa í markinu á næstu leiktíð. Ingibjörg kemur frá norska félaginu Flint Tønsberg þar sem hún hefur staðið vaktina á milli stanganna undanfarin 13 ár.

Með Flint hefur Ingibjörg leikið í næstefstu deild auk U20 og U18 liða félagsins. Ingibjörg á einnig að baki landsleiki með U18 landsliði Íslands.


„Ingibjörg er afar spennandi og öflugur markvörður sem mun klárlega styrkja okkar metnaðarfulla starf en KA/Þór, sem lék sem nýliði í efstu deild á nýliðnum handboltavetri, komst í undanúrslit í bikarnum auk þess að komast í sjálfa úrslitakeppnina,“ segir í tilkynningu KA/Þórs.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -