KA/Þór varð í kvöld þriðja liðið til þess að komast í undanúrslit bikarkeppninnar. Í síðkvöldsleik í Hertz-höllinni á Seltjarnarnesi vann KA/Þór með þriggja marka mun, 24:21, eftir að hafa verið með fjögurra marka forskot, 14:10, þegar fyrri hálfleikur var að baki.
KA/Þór komst síðast í undanúrslit bikarkeppninnar árið 2022.
Lítill vafi var á þegar kom fram í síðari hálfleik hvort liðið væri sterkara. KA/Þór var með þriggja til sex marka forskot. Grótta gerði áhlaup undir lokin en munurinn var of mikill til þess að koma í veg fyrir sigur KA/Þórs að þessu sinni.

Fyrr í kvöld komust Haukar í undanúrslit en Fram varð fyrsta liða til þess í gærkvöld. Annað kvöld verður síðasti leikur átta liða þegar FH og Valur mætast í Kaplakrika klukkan 20.
Mörk Gróttu: Ída Margrét Stefánsdóttir 7, Katrín S Scheving Thorsteinsson 5, Edda Steingrímsdóttir 2, Karlotta Kjerúlf Óskarsdóttir 2, Þóra María Sigurjónsdóttir 2, Edda Steingrímsdóttir 2, Katrín Helga Sigurbergsdóttir 1.
Varin skot: Andrea Gunnlaugsdóttir 11.
Mörk KA/Þórs: Bergrós Ásta Guðmundsdóttir 5, Lydía Gunnþórsdóttir 4, Sólveig Lára Kristjánsdóttir 4, Trude Blestrud Hakonsen 4, Ólöf Kristín Þorsteinsdóttir 2, Susanne Denise Pettersen 2, Anna Þyrí Halldórsdóttir 1, Unnur Ómarsdóttir 1, Tinna Valgerður Gísladóttir 1.
Varin skot: Bernadett Leiner 14 – Selma Sigurðardóttir 1.


