Eftir tvær framlengingar vann KA lið ÍBV með eins marks mun í fyrsta leik úrslitakeppni Olísdeildar karla í handknattleik í Vestmannaeyjum í kvöld, 34:33. Eyjamenn náðu tveimur sóknum á síðustu mínútu síðari framlengingarinnar til þess að jafna metin og ná í vítakeppni. Allt kom fyrir ekki. Næst mætast liðin í KA-heimilinu á sunnudaginn klukkan 15. Vinni KA öðru sinni tryggir liðið sér sæti í undanúrslitum. Vinni ÍBV kemur til oddaleiks á skírdag, 2. apríl, í Vestmannaeyjum.
- KA var tveimur mörkum yfir í hálfleik, 13:11.
- ÍBV skoraði þrjú mörk í röð og jafnaði metin, 21:21, þegar rúmar 10 mínútur voru til leiksloka.
- ÍBV náði tveggja marka forskoti þegar skammt var til loka venjulegs leiktíma, 26:24.
- KA skoraði tvö mörk síðustu mörkin í venjulegum leiktíma.
- Eftir jafna framlengingu náði KA tveggja marka forskoti, 33:31, og 34:32 síðustu fimm mínútur síðari framlengingar.
- Erlingur Richarsson þjálfari ÍBV fékk rautt spjald í fyrri hálfleik.
- Róbert Sigurðarson hinn sterki varnarmaður ÍBV fékk rautt og blátt spjald þegar rétt rúmar 10 mínútur voru til loka venjulegs leiktíma.
- Sigtryggur Daði Rúnarsson fékk högg á höfuðið þegar fimm mínútur voru til loka venjulegs leiktíma. Hann kom ekkert meira við sögu.
- Morten Linder lék með KA eftir nokkurra vikna hlé vegna meiðsla.
- Giorgi Dikhaminjia lék ekki með KA vegna meiðsla sem hann varð fyrir í landsleik með Georgíu gegn Ísrael í síðustu viku í forkeppni HM.
- Andri Erlingsson, Hákon Daði Styrmisson og Ísak Rafnsson léku ekki með ÍBV vegna meiðsla.
- Eftir því sem næst verður komist fór KA-liðið með flugi til Eyja í dag og fer aftur til baka í kvöld.
- ÍBV – KA 33:34 – (11:13), (26:26) (31:31) (33:34).
Mörk ÍBV: Dagur Arnarsson 10/5, Elís Þór Aðalsteinsson 7, Sveinn José Rivera 5, Daníel Þór Ingason 3, Anton Frans Sigurðsson 3, Nökkvi Snær Óðinsson 2, Kristófer Ísak Bárðarson 2, Sigtryggur Daði Rúnarsson 1.
Varin skot: Petar Jokanovic 20, 38,5%.
Mörk KA: Einar Rafn Eiðsson 8/6, Bjarni Ófeigur Valdimarsson 7, Morten Linder 4, Magnús Dagur Jónatansson 4, Einar Birgir Stefánsson 3, Dagur Gautason 3, Arnór Ísak Haddsson 3, Jens Bragi Bergþórsson 2.
Varin skot: Ágúst Elí Björgvinsson 21/2, 41,2%.
Tölfræði leiksins hjá HBstatz.
- Næsti leikur liðanna verður á sunnudaginn í KA-heimilinu. Flautað verður til leiks klukkan 15.



