-Auglýsing-

Kærkominn sigur hjá Rúnari

- Auglýsing -

Rúnar Sigtryggsson þjálfari HSG Wetzlar fagnaði langþráðum sigri í kvöld er liðið sótti heim og lagði GWD Minden, 33:31, í hörkuleik. Lærisveinar Rúnars fóru hamförum í síðari hálfleik er þeir sneru leiknum sér í hag eftir að hafa verið fjórum mörkum undir í hálfleik, 15:11.


Með sigrinum færðist Wetzlar tveimur stigum frá Leipzig sem situr eftir eitt í neðsta sæti þýsku 1. deildarinnar í handknattleik. Leipzig mætir Stuttgart á heimavelli á morgun.

Dominik Mappes var markahæstur hjá Wetzlar með 10 mörk. Ahmed Nafea var næstur með sjö mörk. Alexander Weck skoraði sjö mörk fyrir Minden-liðið sem er ásamt Bergisher næst fyrir ofan Wetzlarliðið með 12 stig.

THW Kiel vann Flensburg á heimavelli í hinum leik kvöldsins í þýsku 1. deildinni, 37:33, í Kiel.


Staðan í þýsku 1. deildinni:

Standings provided by Sofascore
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -