Viggó Kristjánsson lét til sín taka í dag þegar lið hans HC Erlangen hafði sætaskipti við Bietigheim í baráttu liðanna við að forðast fall úr þýsku 1. deildinni. HC Erlangen vann leikinn, sem fram fór á heimavelli Bietigheim, 29:23.
Viggó, sem var keyptur til Erlangen um áramótin með það að markmiði að freista þess að halda liðinu áfram í efstu deild, skoraði sjö mörk og gaf fimm stoðsendingar. Hann var atkvæðamestur leikmanna Erlangen. Þrjú markanna skoraði Seltirningurinn úr vítaköstum.
Enn í hættu
Kálið er hinsvegar langt frá því sopið hjá Viggó og liðsfélögum í HC Erlangen. Þeir eru í 16. og þriðja neðsta sæti með 16 stig og eiga einn leik eftir. Bietigheim er stigi á eftir en á tvo leiki óleikna. Stuttgart er með 16 stig eins og HC Erlangen í 15.
sæti og á eftir að leika tvisvar. Potsdam er fallið fyrir löngu síðan en hvaða lið fylgir með niður í aðra deild skýrist væntanlega ekki fyrr að viku liðinni þegar lokaumferðin fer fram.
Næst síðasta umferð deildarinnar fer fram á miðvikudag og fimmtudag. HC Erlangen og Rhein-Neckar Löwen sitja þá hjá enda viðureign þeirra lokið fyrir nokkru. Bietigheim sækir Leipzig heim á miðvikudaginn og grannliðin Stuttgart og Göppingen leiða saman hesta sína.
Wetzlar á útivelli
Í síðustu umferð þýsku 1. deildarinnar á sunnudaginn eftir viku sækir Erlangen liðsmenn HSG Wetzlar heim, Bietigheim fær Magdeburg í heimsókn og Stuttgart og Leipzig eigast við.
Staðan í þýsku 1. deildinni: