Karlalandsliðið í handknattleik hækkar um tvö sæti á milli ára á styrkleikalista Handknattleikssambands Evrópu. Ísland situr í sjöunda sæti þegar árangur landsliðsins á EM 2026 hefur verið tekinn með í reikninginn. Við útreikningana er litið til árangurs á fjórum síðustu stórmótum, allt frá undankeppninni til enda í lokakeppni.
Kvennalandsliðið hreyfist ekki á milli ára. Það situr í 18. sæti eins og þegar listinn var uppreiknaður fyrir ári. Ísland hefur aðeins fleiri stig en á listanum á síðasta ári en það nægir ekki til þess að færast ofar.
Inn í útreikningana að þessu sinni voru tekin EM 2026 í karlaflokki og HM kvenna 2025 í kvennaflokki. Síðasta árið sem sem tekið er með í reikninginn hjá karlalandsliðunum er 2023 en 2022 hjá landsliðum kvenna.
20 efstu þjóðir í karlaflokki:
(innan sviga eru breytingar á sætaskipan 10 efstu á milli ára).
1. Danmörk – 118 stig. (–)
2. Frakkland – 94 stig. (–)
3. Þýskaland – 91 stig. (–)
4. Króatía – 86 stig. (+1)
5. Portúgal – 76.5 stig. (+2)
6. Svíþjóð – 69 stig. (-2)
7. Ísland – 66 stig. (+2)
8. Ungverjaland – 65 stig. (-2)
9. Noregur – 61 stig. (-1)
10. Slóvenía – 57 stig. (+1)
11. Spánn - 47,5 stig.
12. Holland - 38 stig.
13. Sviss - 36,5 stig.
14. Austurríki - 33 stig.
15. Norður Makedónía - 31,25 stig.
16. Serbía - 27,5 stig.
17. Færeyjar - 26,5 stig.
18. Tékkland - 26,5 stig.
19. Pólland - 26 stig.
20. Ítalía - 25 stig.
Sjá einnig: Ísland í efsta flokki á HM – leikstaður liggur ekki fyrir
20 efstu þjóðir í kvennaflokki:
(innan sviga eru breytingar á sætaskipan 10 efstu á milli ára).
1. Noregur – 118 stig (–)
2. Danmörk – 98 stig (+1)
3. Frakkland – 97 stig (-1)
4. Þýskaland – 85 stig (+2)
5. Holland – 83 stig (–)
6. Ungverjaland – 73 stig (+1)
7. Svartfjallaland – 72 stig (+1)
8. Svíþjóð – 68 stig (-4)
9. Rúmenía – 50 stig (+2)
10. Pólland – 47,5 stig (+2)
11. Slóvenía - 43 stig.
12. Spánn - 41,5 stig.
13. Tékkland - 34,5 stig.
14. Sviss - 32 stig.
15. Serbía - 31,5 stig.
16. Króatía - 31,5 stig.
17. Austurríki - 30 stig.
18. Ísland - 25,25 stig.
19. Norður Makedónía - 23 stig.
20. Færeyjar - 22,75 stig.
Hér fyrir neðan eru listarnir í heild sinni:



