- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Katla María nálgast úrvalsdeildina óðfluga

- Auglýsing -

Katla María Magnúsdóttir og stöllur hennar í Holstebro Håndbold unnu öruggan sigur á Sæby HK, 34:27, í 19. umferð dönsku 1. deildarinnar í Holstebro í dag og eru því langt komnar með að tryggja sér sigur í deildinni og þar með sæti í úrvalsdeildinni á næsta tímabili.

Holstebro þarf aðeins eitt stig til viðbótar til þess að vinna deildina og er sex stigum fyrir ofan Ajax København þegar aðeins þrjár umferðir eru óleiknar.


Takist Ajax að jafna Holstebro að stigum mun markatalan ráða úrslitum þar sem staðan er einnig hnífjöfn í innbyrðis viðureignum liðanna, sem unnu hvorn fjögurra marka heimasigurinn um sig.

Katla María skoraði þrjú mörk fyrir Holstebro í dag, öll af vítalínunni. Var hún með 100% skotnýtingu.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -