- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Katrín Tinna hlaut þungt höfuðhögg

- Auglýsing -

Katrín Tinna Jensdóttir, línu- og varnarmaður íslenska landsliðsins, varð fyrir því óláni að fá þungt höfuðhögg snemma leiks í leik Íslands gegn Svartfjallalandi sem nú stendur yfir í undankeppni EM 2026 á Ásvöllum.

Katrín Tinna fór þjökuð af velli og hélt um höfuð sér eftir tæplega tíu mínútna leik í kjölfar þess að Sara Dögg Hjaltadóttir fékk dæmt á sig vítakast.

Textalýsing: Ísland – Svartfjallaland, kl. 18


Varð hún einhvern veginn á milli Söru Daggar og leikmanns Svartfjallalands með fyrrgreindum afleiðingum. Katrín Tinna hlaut aðhlynningu hjá Tinnu Jökulsdóttur sjúkraþjálfara landsliðsins og hélt svo inn í búningsklefa.

Hún sást ekki á varamannabekknum það sem eftir lifði af fyrri hálfleik og kom ekki heldur út úr klefanum þegar síðari hálfleikur hófst.

Kom Katrín Tinna ekkert við sögu í síðari hálfleik heldur og leikur vafi á því hvort hún ferðist með liðinu út til Svartfjallalands í nótt.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -