- Auglýsing -
Katrín Scheving hefur skrifað undir nýjan samning við Gróttu. Hún verður tvítug á árinu er fjölhæfur leikmaður sem getur leyst fleiri en eina stöðu en leikur þó helst á miðjunni eða í vinstri skyttu.
Katrín á að baki 86 leiki með meistaraflokki Gróttu. Hún tók þátt í öllum leikjum Gróttu í Olísdeildinnni á síðustu leiktíð og skoraði í þeim 38 mörk. Katrín er uppalin í Gróttu og hefur verið í æfingahópum yngri landsliða.
„Ég bind miklar vonir við Katrínu á komandi árum hjá félaginu. Katrín er frábær íþróttakona sem hefur mikinn hraða og baráttuvilja sem hentar vel fyrir okkar hugmyndafræði,“ segir Júlíus Þórir Stefánsson þjálfari Gróttuliðsins sem leikur í Grill 66-deild á næstu leiktíð.
- Auglýsing -